Er ríkið að fara að dæla fé í Sementverksmiðjunna????

Mig langar að fá upplýsingar um hvort það sé rétt að Jón Bjarnarson sé að fara að dæla peningum í Sementverksmiðjuna á Akranesi. Ég hef fengið upplýsingar um það að hann sé búin að vera þar á fundum ,og sé að ræða hvernig aðkoma ríkisins eigi að vera.  Mér finnst það forkastanleg og ólíðandi.  Ríkið ákvað að "selja" verksmiðjuna fyrir nokkrum árum (En samt þurfti ríkið að láta um 200 milljónir með henni til að losna frá henni) og einn af kaupendunum skuldaði um 900 milljónir sem hann gat þurrkað út.  Þessi sami kaupandi er með vildarkjör nú í verksmiðjunni sem eru að borga ekki og vextir eru 0%, og eftir því sem mér skilst er skuldin orðin hátt í 3000.000.000.kr.  Hvernig má það vera að einn aðli fái svona kjör,og hvernig má það vera að skattborgarar Íslands eigi að leggja fé inn í þessa verksmiðju.  Þetta viðkomandi fyrirtæki er skráð í Luxingburg og heftur ekki skilað ársreikningum til skattsins í 10 ár.  Hvernig dettur mönnum að ætla svo að henda peningum úr ríkisjóði inn í þessa hít.  Mér finnst að Sementverksmiðjan verði að leggja alla reikninga á borðið áður en þessi afgreiðsla verður gerð.  er það ekki sangjörn krafa okkar sem erum að reyna að halda í okkur lífinu og margt fólk sem er búið að missa allt sitt og hefur ekki fengið neina úrlausn mála hjá hinu obenbera eigi rétt á að fá að sjá reikniunga félagsins áður en ríkið fer að hlaupa undir bakka með svona fyrirtæki.  Auðvitað geri ég mér grein fyrir að þarna vinnur fólk sem er að reyna að framflett sér en það réttlætir ekki svona sukk að mínu mati.

Eru menn hissa á því???

Það er erfitt að framvísa kvittunum af barnum!!!  Kannski eru menn ekki til í að láta það sjást nema kannski Sigmundur Ernir honum er alveg sama þó hann sé blindfullur að samþykkja lög sem skuldsetur þjóðina í nætu 20 ár.  Og það var bara óheppilegt að mati þing forseta.
mbl.is Fáir frambjóðendur hafa skilað uppgjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættu Ólafur !!!!!

Mér finnst komin tími til að þessi maður víki úr embætti.  Þetta er sá embættismaður sem ekki gat samþykkt fjölmiðlalöginn á sínum tíma vegna þess að hann skynjaði " AÐ ÞAÐ VÆRI GJÁ Á MILLI ÞINGS OG ÞJÓÐAR" En þessi sami maður sá ekki gjá á milli þings og þjóðar þegar hann samþykkti Icesafe löginn. Þessi maður tók mjög virkan þátt í öllu sukkinu í bönkunum og var eins og landa fjandi í einkaþotum "AUÐMANNA" um allan heim, og hélt stórar veislur á okkar kostnað.  Nú kemur hann gapandi í viðtöl úti í heimi og segir Bankarnir stöfuðu samkvæmt lögum það voru bara einhverjir sem klikkuðu. Eru svona yfirlýsingar frá mönnum sem eru innvinkaðir inn í hrunið og tóku þátt í að skapa það á meðan þeir voru á þingi erum við tilbúin að vera senda svona menn út á örkina og kynna málstað þjóða okkar.  Væri ekki skynsamlegra að nýra það fé sem fer í svona ferðalög í að létta fólki byrðar sínar.  Mér finnst að menn ætu að vera meiri og leggja þetta embætti niður strax áður en það skaðar okkur meira. 

Væri ekki sniðurt að fólk í landinu fengi að kjósa um það að víkja honum úr embætti??


mbl.is Íslensku bankarnir störfuðu samkvæmt reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlega góð ræða hjá Sóley........

Ég er nú ekki hrifin af málflutningi og aðgerðarleysi Vinstri Grænna,  En ég verð samt að hrósa Sóley Tómasdóttir fyrir skelegga og góða ræðu.  Það væri óskandi að það væru fleiri svona manneskjur innan raða Vinstri Grænna.  Allavega hafa ekki komið lausnir í þjóðmálunum úr þeim herbúðum enn.  Ég er ekki sammála að við séum að selja þau vopn úr höndum okkar sem gætu hjálpað okkur að komast úr vandanum sem þjóðin er komin í.  Það væri allavega byrjunin að halda í þau fyrirtæki sem gætu skapað okkur verðmæti. 

Síðan væri gott að það fólk sem er og var á ofurlaunum vegna mikillar ábyrðar kæmi fram í dagsljósið og bæri ábyrgð.  Er ekki komin tími til að það sé allavega talað við þetta fólk.


mbl.is Heitt og rafmagnað í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað láta lýðin blæða..

Auðvitað á að fá krafta fólksins til að borga og borga,svo hægt verði að hanga á flugvélastélunum aftur.  Ég myndi segja af mér ef ég væri búin að vera taka þátt í sukkinu eins og Ólafur er búin að gera undanfarin ár.  Dæmalaust siðleysi.

Ég hef hvergi séð á blaði eftir þennan mann að bjarga skuli heimilunum í landinu , eða annað til að mykja hökk lýðsins sem á að fara borga lýðskrumið sem hann hefur tekið þátt í á fullu,en þykist hvergi hafa komið nálagt.


mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru dæmalausir snillingar.............

Mig langar að spyrja og það er skylda Stjórnvalda áður en þeir fara að styrkja Sementsverksmiðjuna að skoða bókhaldið.   Hvað er B.M Vallá búið að borga mikið af skuldum sínum við Sementsverksmiðjuna??.  Ég veit fyrir víst að áður en þeir keyptu hlut sinn í verksmiðjunni skulduðu þeir um 2 milljarða í sementi.  Hvað er t.d. búið að borga mikið af því??  Á sama tíma og þeir tala um undirboð, hafa þeir tekið út þúsundir tonna af sementi og ekki greitt en stundað undirboð á steypumarkaðnum.  Þetta er dæmalaus tilbúningur hjá Verksmiðjunni.  Þeir vita betur sjálfir.  Ég skora á Gunnar Forstjóra að birta tölur um greiðslur frá B.M Vallá síðust ár og hver er skulda staða hjá þessu sama fyrirtæki í dag.  Einnig væri fróðlegt að sjá hvað ríkið lét verksmiðjuna fara  á in the end þegar Ríkið seldi.  Hvað greiddi ríkið í leigu fyrir tankanna í Reykjavík og þá til hverra?? 
mbl.is „Úrslitatilraun til að flæma okkur úr landi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var fróðlegt að heimsækja Vesturlandið... Til umhugsunar.

Ég var að koma úr ferð til Snæfellsnes og Vestfjarða.  Það er rosalega gott að fara í svona ferðir.  Maður kemst í snertingu við púlsinn á lífinu hreinlega, þarna býr fólk sem er að framleiða afurðir til útflutnings og er að borga þá hít sem við erum komin í en tók samt ekki þátt í ruglinu.  Þarna er fólk sem þarf að þola ónýtar samgönur og niðurskurð á öllum sviðum en er samt þarna og elskar sitt land og sitt svæði.  Það er grátlegt að koma og tala við trillukarlanna og frystihúskonurnar,framkvæmdastjóranna.  Þetta fólk þarf að þola það að þurfa að fá tilkynningar um að það sé 5% innköllun á kvóta,bændurnir þurfa að keyra öllu sínu fé til slátrunar til Sauðakróks, það þarf að þola hækkanir á öllum aðföngum um c.a 100% á hálfu ári.  Samt er þetta fólk, fólk sem er búið að leggja allt sitt undir og kaupa kvóta ,það er búið að vera reyna að finna leiðir án styrkja til að komast betur frá landbúnaðinum.  En núna getur þetta fólk ekki skipulagt sig neitt, það getur ekki gert áætlanir, það veit ekki hvort húsin verða tekin af þeim,það veit ekki hvort það sé með vinnu eftir sumarfrí því á þessum stöðum er aðeins eitt fyrirtæki sem er að brauðfæða allt þorpið.  Þetta er rosalegt hvernig er verið að fara með fólk í landinu.  Fólk sem engan vegin kom nálagt vitleysunni.  Það koma bara tilkynningar um niðurskurð og niðurskurð og hækkanir á sköttum og ég veit ekki hvað.  "ÞETTA ER ROSALEGT".  ég held að það væri hollt fyrir þessa ráðamenn okkar að fara á þessa staði og hlusta á þetta blessaða fólk áður en þeir taka ákvörðun um svona stórar ákvarðanir eins og t.d. 5% innköllun á kvóta, og vera ekki búin að ákveða hvernig á að vinna með þennan kvóta.  Ég held að við ættum að senda alla þessa þingmenn í útlegð í smá tíma og láta þá kynnast lífinu úti á landi.  Nýjasta tilkynningin var að koma til þessa fólks að ekki eigi að laga vegakerfið þarna, sem er algerlega óviðunandi.  Er það stefnan að koma öllu fólki til Reykjavíkur???  Og ef svo er hvað á þetta fólk að vinna, þar sem allir bankar eru lokaðir öll fyrirtæki eru að stoppa,og búið er að sela öllum lífeyrissjóðum.

 

Ég bara spyr?? 


Svona er þetta í Bretlandi en á Íslandi er mönnum fagnað eins og hetjum ef þeir misnota fé almennings.

Það er öðruvísi hér á landi.  Hér segja menn að við lærum á mistökunum,á því að láta það komast upp hversu miklu menn stela.  Hér eru menn ekki færðir úr stað einu sinni.  Forstórar alþingismenn,ráðherrar.  Það er eins ég að við séum svo vitlaus almenningur í þessu landi að okkur komi þetta ekki við.

ég var að fletta vanskilaskrá í dag að gamni, ég sá engan af þessum svokölluðu útrásarvíkingum á þeirri skrá.  Þetta kom mér dálítið spánskt fyrir sjónir. Menn sem eru búnir að koma hálfri þjóðinni þarna inn.  Er þetta í lagi.


mbl.is Þingforseti segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hver segir að sukkið sé búið

Það er hryllingur að fólk sé að missa húsin sín á uppboð, og aðgerðarleysið hjá hinu opinbera er lítið sem ekkert.  En það vesta er að sukkið í bönkunum er ekki minna núna eftir að ríkið tók yfir.  ég hef sannanir í höndunum um að Byr banki var að selja 30-35 milljóna sumarbústað til einhvers gæðings innan bankann á 4,9milljónir.  ég er með þetta á blaði fyrir framan mig þar sem er verið að senda tilkynningu um þessi viðskipti í fasteignamatið.  Einnig veit ég um að starfsmenn Kaupthings banka hafa gengið fyrir að kaupa hús á slikk sem bankinn hefur verið að hirða á uppboði.  Hús sem kostuðu 60-70 milljónir eru að fara til starfsmanna á 15-25 milljónir síðan er fólkið sem átti þessi hús hund elt til æviloka..  Hvar er fjármálaeftirlitið???  Hvar er bankaeftirlitið ?? hvar er þetta gegnsæja starfsemi sem átti að vera??  Þetta er sama hyskið sem er að stjórna bönkunum og var fyrir hrun og þingmenn eða ráðherrar ráða ekkert við þetta fólk.
mbl.is Þrefalt fleiri fasteignir á uppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru gæfusamir menn.

Mikið held ég að þessir menn séu gæfusamir,og gaman hjá þeim að lenda í þessu og gengur vel.  Það hlýtur að vera gefandi að geta tekið á móti barni og allt gengur vel.  Til hamingju strákar.
mbl.is Fæddist á Vesturlandsvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband