Enn meira um gjörðir Sturlu.............

Ég hef bloggað um þetta mál áður.  Þetta er bara toppurinn á ísjakanum sem er að koma í ljós.  Þessi útgerð er búin að sniðganga hafnargjöld um ára bil og hafa fulltrúar í hafnarnefnd beðið um að fá að sjá sundurliðaða reikninga og fleiri gögn um þetta mál en ekki fengið.  Það er margt gruggugt í samskiptum Sturlu Böðvarssonar og framkvæmdarstjóra Sæferða.  Og þeir menn sem vildu að fá að skoða pappíra, voru hreinlega flæmdir í burt úr stjórnum og hreinlega úr sveitafélaginu. 

Það eru búnar að koma nokkrar kennitölur og oft hafa staðið út af borðinu nokkrar skuldir, þar á meðal hafnagjöld og opinber gjöld bæði til ríkis og sveitafélags.   

Þessi gjörð milli þeirra félaga fór mjög leynt og eins og kemur fram í fréttum hefur útgerðarmaðurinn ekki greitt það sem honum ber enda er "feyk" í sölusamningi og þetta er bara hluti af því sem hann fékk fyrir skipið.  Þannig að bætist enn á "glæstan" feril Sturlu. 

Svo tók Kristján Möller við og steinþegir og þorir ekki að taka á einu einasta máli sem hann (Sturla) gerði í sig með.

 

 


mbl.is Segir ríkið hafa hagnast verulega á sölu Baldurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband