Þarna er þeim rétt lýst..

Þarna er Færeyingum rétt lýst.  Þetta er eitt besta land sem ég hef komið til.  Ég var þarna í ein 2 ár að sigla og mér finnst fólkið í Færeyjum yndislegt, og þeir hafa alltaf staðið við bakið á okkur sem þjóð.  En við vorum ekki eins rausnarleg í vetur þegar neyðarástand ríkti í Götu og Skákavík eftir mikið óveður.  Þá hlupum við ekki til.
mbl.is Færeyingar vilja lána Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ...

Sæll Einar !

Ég fór á Ólavsvöku fyrir nokkrum áratugum síðan ásamt tveimur félögum mínum ég get staðfest það að betri gestgjafar eru varla til. Og genturnar maður, úlla la , svo ég tali nú ekki um skerpuketið.

Kv. K.H. 

..., 28.10.2008 kl. 23:18

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Rétt rúmir 6 milljarðars - góðir vinir Færeyingar á sama tíma erum við að byggja varðskip fyrir 5 milljarða og þjóðin á hausnum - ekki misskilja mig ég er mjög meðvitaður um störf LHG og þörfin er brín en  ? - það gæti alveg eins komið til fækkunar hjá LHG eins og öðrum fyrirtækjum í eigu hins opinbera því spyr ég,  má fresta þessari smíði - selja skrokkinn - eða bara að halda áfram eins við höfum gert með bundið fyrir augu undanfarin ár ?

Kanski illa séð að ræða svona hluti

Jón Snæbjörnsson, 29.10.2008 kl. 09:27

3 identicon

Þeir vissu að heimsmeistarinn var frá Íslandi og starfandi á Íslandi ásamt forseta vorum sem vinur heimsmeistarans sem var í útrás í strandsiglingum

Ómar Karlsson (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 11:21

4 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Sælir strákar.

Góður punktur hjá þér Jón, þetta er alveg spurning.  Við höfum ekkert að gera með skip sem liggur í höfn.  Við getum alveg eins sýnt myndir af því.  Það sparar allavega hafnargjöld.

Einar Vignir Einarsson, 29.10.2008 kl. 12:50

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Við erum sammála Einar að nýtt skip þarf að koma en kanski ekki akkúrat eins og staðan er í dag ? ekki frekar en að endurnýja kylfur lögreglumanna, eða bifreiðar ráðamanna, ef einhverntíma þarf að fara vel með þá er það núna -  í dag eru tvö ágætis skip í notkun VS ÆGIR og VS TÝR  sem kosta lítið nema þá lágmarks rekstrarkostnað sem er þekktur en samt eru þau oftar en ekki bundinn við þennann "tilla" í henni Reykjavikhöfn sökum fjárskorts.

Jón Snæbjörnsson, 29.10.2008 kl. 13:01

6 identicon

Ég þekki nokkra Færeyinga og þeir eru frábært fólk

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband