Föstudagur, 13. febrúar 2009
Er ekki hægt að þagga niður í.....
Er ekki hægt að koma fjölmiðla banni á þennan gap-uxa. Hann er altaf gapandi um einhverja hlut sem eru að skaða þjóðina heilt helvíti. Fortíð hans í stjórnmálum er ekki þannig að sómi sé af ob best fyrir alla að þagga niður í honum,ellegar henda honum úr embætti.(Þó fyrr hefði verið)
Utanríkismálanefnd fjallar um forseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 13. febrúar 2009
En hvað með föllnu heimilin??'
Þrot Baugs yrði þungt högg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 9. febrúar 2009
Mig langar að biðja alla sem bera hag lífeyrissjóða á að lesa þetta!!!!
Mig langar að biðja alla sem er umhugað um lífeyrir sinn að lesa þessa grein eftir Ragnar (Risaeðlan.blog.is) HANN ER BÚIN AÐ VERA AÐ KAFA OFAN Í SUKKIÐ SEM ER ÞARNA INNANBÚÐAR OG HEFUR STAÐIÐ SIG MJÖG VEL Í þVÍ. Ég man vel eftir því þegar formaður Skipstjóra og stýrimannafélagsins Hafþórs á Akranesi fór að gagngrína lifeyrissjóð Sjópmanna á þeim tíma var honum hreinlega hent út úr stjórn og gert lífið óbærilegt innan stjórnar. Þetta sem Ragnar hefur verið að gera er það sama. Fyrir bragðið er honum sýnt þvílíkur dónaskapur og reynt er að rægja æru hans eins og hægt er. VIÐ EIGENDUR LÍFEYRISSINS EIGUM AÐ GEFA ÞESSU MEIRI GAUM. Og stiðja hann í því sem hann er að gera.
Hér kemur grein Ragnas í heild sinni.
.2.2009 | 09:59
Ekki voru lífeyrissjóðirnir lengi að svara.
Eftirfarandi svar við pistli mínum "Blekkingar Lífeyrissjóða" var birt á heimasíðu þeirra www.ll.is um tveimur klukkustundum eftir að ég birti færsluna. Þett er nýtt met hjá þeim en fyrra metið á Þorgeir Eyjólfsson hjá Lífeyrissjóði Verslunarmanna sem er um 10 tímar, þegar hann svaraði gagnrýni minni á stöð 2 um fjölskyldutengsl stjórnenda.
Sjá svar og andsvör:
Föstudagur 6. 02. 09
Rangfærslur í bloggskrifum.
Ragnar Þór Ingólfsson fer hörðum orðum um starfsemi lífeyrissjóða og stjórnenda þeirra í skrifum á bloggsíðu sinni í dag (http://ragnar73.blog.is/blog/ragnar73/entry/796473/) og það ekki í fyrsta sinn. Hann má að sjálfsögðu hafa þær skoðanir á mönnum og málefnum sem hann kýs en afar æskilegt er að draga ekki ályktanir af gefnum forsendum eða hreinum staðleysum. Þessar kröfur verður ekki síst að gera í ljósi þess að sumt fjölmiðlafólk fjallar um ályktanir bloggarans eins og þar sé sjálfan sannleikann að finna. Þess vegna fáeinar ábendingar og athugasemdir.
1. Ársreikningar lífeyrissjóða eru færðir í samræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins og þar er kostnaði skipt upp í fjárfestingagjöld annars vegar og rekstrarkostnað hins vegar. Það er útúrsnúningur að gefa í skyn að um blekkingar sé að tefla við framsetningu ársreikninganna. Rekstrarkostnaður íslensku lífeyrissjóðanna er lágur í alþjóðlegum samanburði og fráleitt að vísa til rekstrartekna lífeyrissjóðanna sem villandi stærðar. Lífeyrissjóðirnir stunda til að mynda umfangsmikla innheimtu á gjöldum fyrir þau stéttarfélög sem standa að viðkomandi lífeyrissjóði. Sá hluti rekstrar lífeyrissjóðanna hefur í för með sér kostnað á móti innheimtulaunum.
Hver á rekstrarkostnaður lífeyrissjóða að vera fyrir 300.000 hræður. Ég er klár á því að hann er ekki mikill í krónum talið á alþjóðlegan mælikvarða en sjálfsagt leitun að öðru eins miðað við höfðatölu. Þetta er enn eitt dæmið um villandi framsetningu.
Ég hef margbent á villandi upplýsingar t.d. um framsetningu rekstrarkostnaðar.
Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna:Rekstrarkostnaður LV hefur ætíð verið með því lægsta sem gerist meðal lífeyrissjóða landsins og var til dæmis 0,05% í hlutfalli af eignum á árinu 2007.
Eignir voru í árslok 2007 rúmir 269 milljarðar. Þá ætti rekstrarkostnaður 0,05% einungis að vera 135 milljónir. Þegar launakostnaður einn og sér er 270 milljónir getur þetta ekki staðist, enda gufar þessi raunkostnaður ekki upp í bókhaldstilfæringum, svo mikið er víst.
2. Röng er sú fullyrðing að lífeyrissjóðir stundi blekkingar, meðal annars með því að velja afmörkuð tímabil til upplýsinga um ávöxtun fjármuna sinna. Sjóðirnir birta einfaldlega upplýsingar um 5 og 10 ára ávöxtun og um árlega ávöxtun í samræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins.
Það þýðir ekkert að vísa í lög og reglur. Málið snýst ekki um það. Málið snýst um villandi framsetningu gagna sem er ekkert ólöglegt svo lengi sem um tölulegar staðreyndir sé að ræða.
Það er rétt! Þeir birta upplýsingar um 5 ára ávöxtun og 10ára ávöxtun eftir því sem við á og betur hentar. Enda ekkert ólöglegt við það, bara villandi. Blekkingar /Villandi , spurning um orðaval.
3. Fráleitt er að halda fram að lífeyrissjóðir komi ekki hreint fram og greini frá áhrifum fjármálakreppunnar á eignasöfn sín. Þvert á móti hafa lífeyrissjóðir efnt til fjölda kynningarfunda fyrir sjóðfélaga og birt upplýsingar um stöðu mála á heimasíðum sínum og í fréttabréfum. Uppgjör fyrir liðið starfsár munu birtast í marsmánuði en á vettvangi lífeyrissjóðanna er nú unnið að tilheyrandi mati á eignum. Ársreikningarnir munu sýna og sanna að upplýsingar undanfarnar vikur og mánuði, um áhrif fjármálakreppunnar á afkomu sjóðanna, hafi á hverjum tíma sýnt eins skýra mynd af stöðunni og unnt var.
Fyrst fullyrtu LV að tap eftir bankahrunið væri aðeins 9,6% Síðan fullyrti Hrafn sjálfur að tapið væri einungis 14,4% á opnum borgarafundi fyrir fullu Háskólabíói. En þá hafði ég sýnt fram á með einföldum hætti að það stæðist ekki. Nú eru þeir komnir í 23,4% og eru enn ekki búnir að gera upp veigamikla tap þætti í fjárfestingum sínum.sjá samantekt mína síðan í Desember 2008.
http://ragnar73.blog.is/blog/ragnar73/entry/740332/
Lífeyrissjóðirnir hafa með "ótal kynningarfundum"????? þetta er nú ein ástæðan fyrir þessari gagnrýni minni, að það litla sem hefur komið frá lífeyrissjóðunum er óraunhæft mat á taprekstri þeirra sem þeir hækka svo eftir því hvað fram kemur af upplýsingum.
Þetta má allt nálgast á live.is.
4. Fullyrðingar um að lífeyrissjóðirnir hafi tapað 40% til 50% eigna sinna ná engri átt og er þeim hér vísað á bug enn einu sinni. Viðkomandi bloggari og fleiri sama sinnis hljóta að vita betur eftir alla kynningarfundina og fréttirnar um málið.
Þessir kynningarfundir hafa alið á misvísandi upplýsingum og fegrunaraðgerðum glataðra fjárfestinga. Og voru algjör brandari.
Tap sjóðanna er ekki minna en 40-50% af öllum eignum, þeir virðast ekki skilja eða vilja ekki viðurkenna að peningamarkaðir heimsins hafa hrunið og meirihluti þeirra fjárfestinga í erlendum verðbréfum eru verðlaus, eða verða verðlaus þar til einhver viðskipti fara fram.Það sem á eftir að koma fram í ársreikningum lífeyrissjóðanna er stórlegt ofmat á eignum þeirra sem verða svo afskrifaðar á 3-5 árum. Rétt eins og þeir gerðu á árunum 2000-2002.
Að Hrafn skuli halda að almenningur éti sem hey það sem frá honum komi er veruleikafyrra.
5. Veruleg hagræðing hefur átt sér stað í lífeyriskerfinu á liðnum árum með samruna lífeyrissjóðanna og ætla má að sú þróun haldi áfram á komandi árum.
Oft má duga! Ekki er hann að þræta fyrir kostnaðinn við kerfið. Ekki er hann að þræta fyrir fjárfestingastefnu sjóðanna sem er að upplagi nákvæmlega eins.
Hvað gætum við byggt margar þjónustuíbúðir á ári fyrir aldraða sjóðsfélaga fyrir helmingin af öllum þessum gríðarlega kostnaði?
6. Vegið er sérstaklega að starfsheiðri framkvæmdastjóra LL í niðurlagi bloggfærslunnar þar sem vitnað er til greinar hans nýverið í Morgunblaðinu um gjaldmiðlavarnarsamninga. Nærtækast er að svara með því að benda viðkomandi og öðru áhugafólki slíkra samninga á að lesa greinina hans aftur og betur. Hana er að finna hér.
Að Kalla þetta fjárhættuspil eða öllu heldur rúllettu með gjaldeyri gjaldeyrisvarnir er móðgun við almenna skynsemi. Gjaldeyrisvarnir eru hugsaðar í allt öðrum tilgangi t.d. vegna afborganir skulda í erlendri mynt og vörukaupa eða framvirkra verksamninga. Ekkert af þessu á við lífeyrissjóðina sem eru með eitt þolinmóðasta fjármagn sem völ er á og engar skuldir. Skýringuna vita flestir í bankageiranum þ.e. Bankarnir og helstu ráðgjafar þeirra sáu í hvað stefndi og veðjuðu gegn krónunni . Það eina sem þurfti var einhvern til að veðja á móti... Hverjir ætli hafi samþykkt að taka þátt og nota til þess ævisparnað okkar....hmmm... Jú lífeyrissjóðirnir.
Ég segi og stend við það. Annað hvort voru stjórnendur og sjóðsstjórar lífeyrissjóðanna svo gjörsamlega út á þekju í störfum sínum "vanhæfir" með því að taka þátt í þessu veðmáli eða þá að þetta var gert til liðka fyrir persónulegum afskriftum lykilstjórnenda á vildarsamningum eða til annarra verri verka á kostnað ævisparnaðs okkar.
Þetta eru hörð orð, en ég hef mjög áreiðanlegar upplýsingar um að þeir aðilar sem ég nefni í grein minni "af hverju fara Lífeyrissjóðirnir ekki í mál..." ,hafi fengið vildarkjör og samninga sem ekki var hægt að tapa á. Svo finnst þeim skrýtið að ég sé að gagnrýna þetta meðan Þeir neita að tjá sig um innihaldið.
Hrafn hefur vegið gróflega að starfsheiðri mínum sem reiðhjólasala með dylgjum sínum um að ég skrifi ekkert nema rangfærslur. Ég vísa þessu til föðurhúsana og skora hér með á Hrafn í Kastljósið eða Ísland í dag til að ræða þessar dylgjur mínar opinberlega.
Kær kveðja
Ragnar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 9. febrúar 2009
Ég held að ég skypti um skoðun varðandi aðild að EU...........
Þegar við komum til Scrabster á laugardaginn,þá komumst við ekki uppað og urðum því að bíða fyrir utan. Ástæða þess var að það var fiskibátur fyrir á bryggjunni. En þegar við komumst uppað kom agentin okkar um borð eins og vera ber. Við fórum að ræða málin eins og við gerum, hún spyr mjög mikið um Ísland og ástæðu þess hvernig allt fór hjá okkur. Hún t.d. sagði mér að Aberdeen hafði tapað stórkostlega miklu á Icesave reikningum og fleiri bæjir þarna í kring,en það sem vesta væri að mjög mikið af fólki sem var komið á eftirlaun í skotlandi hefði látið glepjast á gylliboðum þessara manna. Síðan fórum við að ræða hvað væri best að gera fyrir Íslendinga, ég sagði að líklega yrði það lendingin að fara í E.U. Þá varð hún hreinlega vittlaus. Hún spurði hvort við værum GALIN. Þá sagði hún mér að þegar Bretar gengu inn þá var því lofað að fiskimiðin við strendur yrðu eingöngu fyrir íbúa sjávarþorpanna. En hvað væri raunin? Báturinn sem ég þurfti að bíða eftir var Spánskur og er að veiða uppí kálgörðum hjá þeim. Á sama tíma er útgerð hjá þeim að deyja út. Þeir eru ekki að fisk a einusinni fyrir íbúanna í bæjunum. Þeir meiga ekki veiða humar við ströndina, en Spánverja djöfullinn (Eins og hún orðaði það) mátti veiða í gildrur síðan koma þeir í land og landa beint í bíla og öllu keyrt beint til Spánar. Það er ekkert sem verður eftir í Skotlandi. Ekki einu sinni keyptur kostur né þjónusta það kemur allt með bílum frá Spáni.
Þegar ég var búin að fá þessa ræðu hjá frúnni þá fór ég að spá betur í þestta, þetta er auðvitað það sem við myndum fá yfir okkur. Svona færi fyrir fiskimiðum okkar og síðan yrðu raforkuverin keypt af einhverjum stórlöxum utan úr heimi og allt verð á raforku myndi rjúka upp. Þá yrði ekkert eftir sem við gætum skapað okkur tekjur á. Ég held að við ættum að íhuga betur aðild okkar að E.U. við hljótum að getað farið í eitthvað samstarf með einhverjum þjóðum með að taka upp annan gjaldmiðil. en ég mátti til með að segja frá þessum umræðum sem voru hjá okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 6. febrúar 2009
Nú er kalt í Færeyjum..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 5. febrúar 2009
Ja hérna. Ég spyr mig hver var að gera hvað í stjórn bankans???
Ég er búin að vera taka þátt í kostningabaráttu innan V.R. Og ástæða þess var helst seta formanns V.R í stjórn bankans. Það var réttlætt með því að hann væri að gæta hagsmuna félagsins. Þegar maður sér svona tölur þá spyr maður sjálfan sig. Hvernig hagsmuna gæsla var þetta. Er það að koma landinu svo á hausin að félagsmenn sjá ekki til sólar næstu ár. Var það til þess að stela öllum lífeyrisjóðum félagsmanna er það kjarabót? Fyreir hverja var verið að gæta hagsmuna? getur einhver frætt mig á því? Þegar ég les þetta ætla ég ekki að gefast upp, ég ætla áfram að reyna að komast í stjórn félagsins og fá að skoða sjóði félagsins ofan í kjölin og upplýsa félagsmenn nái ég kjöri. Mér finnst þetta með ólíkindum.
Kaupþing skuldar 2432 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. febrúar 2009
Búin að fara einn hring.....
Ég er komin úr fyrsta túr. Við komum hingað í Toftir kl 10:40 í morgun. Þetta var ævintýralegt ferðalaf. Fyrst var flugið skelvilegt (ég er svo flughræddur he he) það var svo mikil ókyrrð þegar við vorum að lenda á Vogi þetta var skelvilegt. Síðan beið bíll eftir okkur og keyrt beinaléið til Runavíkur og við hoppuðum um borð og síðan farið beint af stað. Það er rosalegt að fá ekki tíma til að kinna sér skipið og þekkja engan en þetta hafðist einhvern veginn. Þegar við vorum konin út á sundin þá skall á okkur sa 25-30 m/sek beint í nefið og það var það versta, ég ekki búin að vera á sjó síðan 2005 og auðvitað var ég drullu sjóveikur. Ferðin til Skotlands gekk því rólega 4-5 mílur og lætin eftir því. En við komum til Scrabster un kl 11:00 á sunnudag og byrjuðum að losa, og fórum þaðan um kl 17:00. Við fengum svo fínt veður aftur til Færeyja. Svo maður gat aðeins reynt að setja sig inní málin hér. Það er rosaleg pappírsvinna og fl sem þarf að koma í lag hér um borð en það er hluti af verkefninu svo að þetta er allt í góðu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 28. janúar 2009
Mig langar að benda fólki á að lesa......................
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. janúar 2009
Kannski flýgur grænt skyr....
NATO fundur: Gífurleg gæsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. janúar 2009
Er Gunnar Páll eitthvað hræddur....
Mér finnst lákúrulegt hjá Gunnari Páli að reyna að vera klóra yfir hagsmunagæslu sína, sem hann telur vera svo eðlilega. Ég er bara rosalega hissa á hvessu veruleikafyrrtur hann er, er hann að ýmynda sér að málin verði ekki rannsökuð. Eða er hann hræddur um að eitthvað komi meira í ljós. Af hverju heldur hann að einhverjir séu að koma á hann höggi? Af hverju ætti einhver að vera á móti honum ef hann er með svo hreynan skjöld? Hverjir innan bankans getur verið svo á móti honum að gögn séu að leka út? Átti hann einhvarja óvildarmenn innan bankans?
Ég segi það bara að maðurinn kemur mjög vel fyrir og ég gæti ekki hugsað mér betri formann stéttafélags. Ég kann mjög vel við að tala við hann og hann er ákaflega kurteis og ber mjög góðan þokka. Ég vildi óska þess að þetta mál hefði ekki komið upp, en sökin er ekki einungis hans sök stjórnin er algerlega vanhæf og ekkert eftirlit hefur verið að hennar hálfu þess vegna bauð ég mig fram til stjórnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)