Mánudagur, 2. júlí 2007
Mánudagur 02.07.2007
Hæ allir.
Þá er maður komin í slaginn aftur. Ég hef verið að vinna síðan daginn eftir að við komum heim, Og það er allt vitlaust að gera. Ég er líka búin að vera að skoða nýja vinnu. Ég er búin að fá tilboð um vinnu frá tveimur mönnum og ég veit að það er að koma meira allavega frétti ég það. Við erum að fara að skoða skip í Hollandi sem við erum að fara að fjárfesta í. Annað sem við erum að skoða er að koma á siglingu milli Þorlákshafnar og Evrópu og einn og einn túr til Ameríku. Við erum búnir að fá það mikið af fyrirspurnum og´margir hafa haft áhuga á miklu samstarfi. En maður er búin að vera bjartsýnn fyrr. En einnig er verið að skoða hringsiglingar innanlands og vera í samstarfi við aðra sem sigla út.
Ég er búin að vera að vinna síðan kl 0400 í morgun svo að ég fer að fara í rúmið, orðin dálítið þreyttur. Ég hef verið að skoða að vera að vinna fyrir annan um helgar eða fara með Dodda vini mínum einn og einn túr í hvalaskoðun og sjóstöng en ég get varla staðið í því á meðan vitleysan er svona mikil í vinnunni minni. Ég fór einn túr um helgina með Andreu nýju skipi sem Gunni Leifur vinur minn var að koma með frá Svíþjóð, Mjög skemmtilegur bátur þar á ferð. Ég fór líka einn golfhring í gær, og viti menn ég spilaði eins og engill. Miðað við forgjöfina mína. Það var ekki hægt að segja það um meðspilara minn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.