Miðvikudagur 05.09.2007

Ég er búin að eiga góða daga undanfarið nema í dag.  Ég fór til tannlæknis og er búin að vera að drepast í kjaftinum.  ÉG var í 2 tíma í stólnum þetta er ekki það skemmtilegasta sem ég geri, en maður verður að gera þetta.

Ég fór í skólann í kvöld og það er ofboðslega gaman.  MAður fær á tilfinninguna að maður sé allur að yngjast upp í svona aðgerðum.  Ég er líka farin að éta gras hehehehehehehe  kallinn að taka skurk á sér ef það er hægt.  Maður er svo klikkaður í hausnum. 

Ég hef verið mjög duglegur að gera þá hluti sem mér finnast leiðinlegir svo sem í heimilis bókhaldinu og fl. en í dag á maður fullt af tíma.  Ég hef verið duglegur að mæta á fundi og svoleiðis bara fullt í gangi hjá kallinum sem er bara gott mál.  Ég er að fara í golfmót um helgina og það verður ábyggilega geggjað.  Síðan er meiningin að skella sér í bústað og dingla sér um helgina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband