Laugardagur, 25. apríl 2009
Þetta var rétt sem Sigmundur Davíð var að segja.
Þetta sannar að Sigmundur Davíð var að segja, og staðfestir það sem ég heyrði út í Skotlandi. Menn voru að kaupa og selja innistæður og skuldabréf í Íslensku bönkunum á 1-2% af nafnvirði. Ég hef hitt mann hér á Íslandi sem var að kaupa 60 000 greiðsluseðla á 6% af nafnverði. Svona er svarti markaðurinn á Íslandi í dag. Menn eru að kaupa kröfur á innanvið 10% af nafnverði og setja þetta svo í hörðustu innheimtu á fólk í þeirri von að getað innheimt 50% af kröfunni. Mér finnst forkastanlegt að stjórnmálamenn að undanskyldum Framsóknarflokknum skuli þræta fyrir eins og sprúttsalar að svona sé ástandið á Íslandi.
Það sem kemur mér mest á óvart að Fjármálaráðherrann skuli vera búin að gleyma því hvernig hann lét í stjórnarandstöðunni. Það er alger umpólun á honum.
Afskrifa 75% fyrirtækjalána | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sigmundur kom Jóhönnu og Steingrími greinilega í vandræði með þessum upplýsingum. En er ekki sannleikurinn sagna bestur.
Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 10:24
Nenni bara ekki kjósa Sjálfstæðisflokkinn þó svo margir geri það af því að langafi eða lang lang afi kaus þá. Gefum þeim spiltu hundum frí.
Jón Ingi Jónsson (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 10:52
Ný kynslóð hvað ! Hver var afi Bjarna Ben ! fæddur og uppalinn sjálfstæðismaður drakk það inn í sig með móðurmjólkinni !! og segir það sem afi og pabbi sögðu ekki er þetta að vera sjálfstæður eða hvað ?
Jón Ingi Jónsson (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 10:59
Hagsmunasamtök heimilanna - skrá sig núna: http://skraning.heimilin.is/
www.heimilin.is
Þórður Björn Sigurðsson, 25.4.2009 kl. 11:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.