Já það er hægt að segja margt um hann.

Guðfaðir ÚTRÁSAR.  Hann hefur hangið á öllum flugvéla stélum hjá útrásarmönnunum og beðið um far.  Hvað skyldi hann skera mikið niður hjá sér í Kreppunni.  Ég spái ekki krónu.
mbl.is Forsetabók afturkölluð úr prentsmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju var ekkert gert??

Því skyldu menn ekkert aðhafast þegar þessar bjöllur fóru að hringja.  Hvar er Fjármálaeftirlitið?  Það er alveg makalaust hvernig menn hafa aðhafst lítið í þessum geira.

 


mbl.is Bankaskýrsla undir stól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er ánægður með þá.

 

 

Kaupþing: Hluthafar höfða mál

Þeir hluthafar sem stærstir voru í Kaupþingi, áður en bankinn riðaði til falls, undirbúa nú að höfða mál gegn breskum stjórnvöldum vegna þeirrar aðfarar að bankanum sem þeir telja að hafi orðið honum að falli.

Þetta staðfesta sumir hluthafa í Kaupþingi en aðrir vilja ekki tjá sig um málið. Einn af stærstu hluthöfunum segir að verið sé að ræða við lögmannsstofur í Bretlandi til að annast málið og sækja skaðabætur. Menn geti ekki sætt sig við þau bolabrögð sem bresk stjórnvöld beittu, menn hljóti að láta reyna á réttarstöðu ríkja og banka í Bretlandi.

Hluthafinn spyr hvort ríki og bankar geti átt á hættu að vera beitt hryðjuverkalögum í Bretlandi vegna skuldbindinga annarra aðila í landinu. Fá þurfi á hreint hvort slíkt standist bresk lög eða ekki. Annar stór hluthafi sagði að málið gæti skýrst í næstu viku. Enn annar hluthafi vildi lítið tjá sig við fréttastofu, sagði aðeins að alls staðar væri verið að reyna að bjarga verðmætum.

 


Fróðlregt að fylgjast með á morgun.

Það er vonandi að botninum sé náð.  Það verður spennandi að fylgjast með morgundeginum.
mbl.is Mesta dagshækkun Dow Jones
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30 ár aftur í tímann...................................

Við vorum að ræða það í vinnunni í dag að Ísland væri að fara 30 ár aftur í tíman með þessari KREPPU.

Ég var að segja við þá að það yrði glæsilegt að komast 30 ár aftur í tímann.

  • Þá væri ég í Stýrimannaskólanum með öllu því fjöri sem þar var T.D.
  • Þá var farið í Klúbbinn á Fimmtudögum
  • Þá var farið í Holliwood á Föstudögum
  • Þá var farið á hádegisbarinn á Röddanum og lært.
  • Þá var farið í Þórskaffi á Laugardögum.
  • þá væri ég dálitið fyrir neðan þriggja stafa tölu á vigtinni.
  • þá værum við Ómar vinur minn að skipuleggja gleði í skólafélaginu.

Nei ég segji bara svona upp á jókið.....  Aðeins að rifja upp old days.


Er Árni Matthíssen rétti maðurinn? Er honum treystandi??

Á eftir öllu sem er búið er að ganga á, þá efast ég um færni þessa dýralæknis til að vera að semja fyrir Íslenska þjóð.  Hann hefur ekkert sýnt á þeim tíma sem hann hefur verið Fjármálaráðherra.  NEMA HROKA OG L'ITISVIRÐINGU. 

Mér finnst að menn sem eru menntaðir í alþjóðaviðskiptum eigi að semja fyrir okkar hönd.  Hann er Dýralæknir og á ekki að koma nálægt svona samningum, að mínu mati.


mbl.is Fundað stíft með IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn græða Norðmenn....

Þeir vita hvað þeir eru að gera.  Þó að þetta sé sárt fyrir okkur Íslendina, er þetta gull fyrir Norðmenn.  Þetta er kannski útgjöld í byrjun en þegar til lengri tíma litið koma þeir til með að græða helling á þessu.
mbl.is Norðmenn yfirtaka Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins er hún komin.

Þetta eru ánægjulegar fréttir.  Maður er búin að vera að bíða eftir að silfrið færi að berast að landi.  Þetta mun auka gjaldeyris innkomu okkar verulega,reynum eins og við getum að vinna þessa afurð til manneldis.
mbl.is Á síld innan við Stykkishólm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki vorkun hjá mér.

Það er alltaf að koma betur í ljós að Gordon Brown var að reina að afla sér fylgis með aðför sinni á Kaupthing. Þetta er sú mesta og versta aðför að ríki sem sést hefur í fjármálaheiminum frá upphafi.  Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Bretar gera svona hluti við okkur, en til gamans má geta þess að þeir hafa alltaf tapað in the end. 

Við eigum að höfða málsókn strax þó að það kosti peninga og tíma.  Við eigum ekki að gefa þaðp eftir.  Enga samninga eða eftirgjafir eða neitt.  Stórar stórar skaðabætur sem við eigum að heimta. En ég er hræddur um það að þessi ríkistjórn þori ekki að fara af stað með málsókn.  Geir Haarde er kjarklaus maður, og með honum er dýralæknir sem ekki kann að tjá sig hvorki á móður máli né Ensku.  Þetta eru mestu skaðvaldarenir í þessari dýfu okkar þjóðar.


mbl.is Breskir bankar yfirteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru mennirnir sem eiga að gæta hagsmuna Íslands.

Ragnar er mjög hæfur fagmaður. Er ekki komin tími til að nota svona menn við hagstjórnum landsins.  Það hefur allt komið fram sem hann er búin að vara við í greinum sínum. 

Mín tillaga er að skipta Davíð út og setja Ragnar í hans stað.


mbl.is Ragnar: Ríkið stendur ekki undir skuldbindingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband