Sunnudagur 19.08.2007

Hæ.

'eg er búin að hafa það fínt um helgina.  Ég er búin að vera menningarviti Smile.  Við fórum á Klamra-Miklatún og horfðum á nokkrar hljómsveitir í boði Landsbankann.  Þetta eru frábær framatök hjá bönkunum og listamönnum mikil lyftistöng til að getað ræktað í sér lystagenin og komið þeim á framfæri. Við fórum svo niður á Laugaveg og enduðum inn á Dillon til að sjá Mínus spila.  Við gáfumst upp því að unglingurinn minn hann Magnús Máni fannst þetta óbærilegur hávaði LoL.  Svo að við röltum niður að sjá til að horfa á flugeldasýninguna.  Og ég sá ekki eftir því, þetta var flottasta sýning sem ég hef séð hér á landi.  Takk fyrir hana Orkuveita Reykjavíkur.  Við vorum á frábærum stað og ekki troðningur eða neitt en ég hef ekki séð eins mikið af fólki á Menningarnótt.  Það er líka miklu betra að fara með sýninguna út á ytri höfnina, og það eru miklu betri aðgengi fyrir alla að sjá hana enda er hún há punkturinn á Menningarnótt.

Síðan í dag er ég bara búin að vera rækta sjálfan mig á sál og líkhama.  Ég er búin að vera að lesa og síðan fara á fund,og síðan fór ég með barnabörnin mín í langan göngutúr enda var amman að vinna svo að það var bara fínt að rölta með börnunum.  Þetta var rosalega gaman og gaman að vera með þeim.  Síðan eru allir í mat hjá okkur í kvöld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Náin fjölskylda er ómetanleg

Jóna Á. Gísladóttir, 20.8.2007 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband