Sunnudagur 30.09.2007

Hæ.

Það var svolítið magnað í gærkvöldi.  Við skelltum okkur á Skagan í gærkvöldi og fórum í mat hjá Gurru og Simma og fórum síðan á transmiðils fund.  Ég hef ekki prófað það áður, þetta var svolítið magnað að verða vitni af þessu.  Það var þarna fullt af fólki og hinar ýmsu persónur komu fram það varð úr þessu hin skemmtilegasta kvöldstund.

Í dag er ég búin að vera að læra og slappa af,  þangað til að Magga kom til mín og ætlaði að læra hjá pabba sínum í rólegheitum.  En Adam var ekki lengi í paradís, brátt kom allur skarinn í kaffi til mín og var hér fram undir kvöldmatSmile síðan kom Sirrý úr vinnu og bjargaði mérBlush en þetta er samt rosalega gaman að sjá skotturnar mínar tvær þær eru svo samrýndar og ná svo vel saman. 

Ég er að undirbúa mig undir ferð sem ég er að fara til Færeyja á fimmtudag.  ´Við verðum þar nokkrir úr vinnunni minni fram á laugardag.  Það er alltaf gaman að vera í Færeyjum, mér líkaði svakalega vel þar meðan ég var þar.  Við erum í svona smá vinnuferð og heimsækjum nokkra af okkar samstarfsmönnum gaman að því.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband