Mánudagur 10.12.2007

sælir allir

Ég er búin að vera latur við það undanfarið að blogga, en ég er að reyna að hrista slenið af mér.  Ég er  búin að eiga góða helgi.  Á föstudaginn fékk ég öll barnabörnin til mín og fórum við að setja upp jóla seríur og hjálpuðum ömmunni að sjæna til.  Það er rosa gaman að vera með þessum krílum.  Á laugardeginum vorum við bara hér heima en Sirrý er á fullu í prófum svo að það er best að hafa hægt um sig hér heima he he he he.  Síðan á sunnudaginn fór ég og Höddi til Keflavíkur út af skipi sem við erum með, við tókum skipstjórann og fórum með hann i Bláa lónið og sýndum honum bæinn og fórum út í Garð.  Mér fannst gaman að koma út í Garð fallega skreytt húsin og fannst Rússanum mikið til þess koma.  Hann var rosalega hrifin af þessu og var rosa uppnumin af Hitaveitunni og talaði mikið um að við værum að hjálpa þeim á Kampjaka við að bora eftir heitu vatni.

Að lokum set ég nokkrar mont myndir!!

IMG_6933

Litlu sílin mín 

   IMG_6890

Falleg systkini,

IMG_6848

Vinkonurnar.

IMG_6874

Við leiðumst alltaf.

IMG_6785

Einbeittur í handboltanum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband