Sunnudagur, 13. apríl 2008
Maður var hissa í nótt.
Ég skellti mér í bústað ó Ölfusborgum í gærdag eftir að hafa verið hér í golfi í kulda og smá vindi. Ég hugsað mér gott til glóðarinnar og skipulagði gærkvöldið með það í huga að fara í gönguferðir og taka myndir og fara svo í pottinn og hafa það næs. Viti menn í gærkvöldi fór að kyngja niður snjó svo að ekki sá út úr augum. Ég gat ekki farið í göngutúrinn og ekki farið og tekið myndir og ekki farið í golf eða neitt, hund svekktur. Svo ætlaði ég í pottinn eftir að við vorum búin að vera með matargesti. Það var svo kaltóg svo mikil snjókoma að ég hélt að maður yrði úti í pottinum. Svo þegar við vöknuðum í morgun voru kanínurnar að reyna að komast áfram og finna sér eitthvað ða éta en sukku jafn harðan í kaf í snjó það voru tæp 2 fet af jafn föllnum snjó fyrir utan. Og ég hélt að það væri komið vor, þetta er Ísland í dag.
Hálka á Hellisheiði og í Þrengslum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.