Mér finnst þessi dómur vægur

Mér finnst þessi dómur ótrúlega vægur.  Þessi maður er búin að vera misnota ungar fárveikar stúlkur, sem voru langt leiddar í fíkn sinni.  Og einnig er með ólíkindum hversu lágar bætiturnar eru lágar.  Hvað er að í dómum á svona málum.  Af hverju er svona mikið ósamræmi í dómum??

En það sem mér þótti rosalega merkilegt, er hugrekki mæðra þessara stúlkna,að koma fram í fjölmiðlum eftir að hafa lesið dóminn.  Hugsið ykkur hversu mikinn kjark þær hafa.  Það er búið að taka stelpurnar í nefið og þær hafa þurft að þola allskonar fordóma vegna þess að hafa komið fram með þetta mál.  Þær hafa misst húsnæði sín,og sumar þeirra hafa ratað aftur í hin grimma heim vímunnar,og ekki náð sér á strik.  Ég get ímyndað mér hversu erfitt það hefur verið hjá þessum fjölskyldum á undanförnum misserum að þurfa að ganga í gegnum allt það sem þau hafa þurft að þola.

 


mbl.is Ósáttur við dóminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband