Sjáið hræsnina hjá Vinstri Grænum......

Það var forvitnilegt að fylgjast með Steingrími í viðtalinu á Stöð 2.  Þeir ætla að fara í flæmingi í olíu málinu eins og í öllum öðrum málum.  Til hvers að kjósa þá???.

Treglega gekk að draga út svar frá Steingrími um olíuvinnslu

mynd
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna.
Steingrímur J. Sigfússon segir Vinstri græna hlynnta rannsóknum á Drekasvæðinu. Fréttamaður þurfti hins vegar að ítreka spurningu sex sinnum áður en svar fékkst við því hvort flokkurinn styddi olíuvinnslu á svæðinu og hvort hún samrýmdist hugmyndafræði flokksins.

Yfirlýsing umhverfisráðherra á Stöð 2 í gærkvöldi um að olíuleit á Drekasvæðinu samrýmdist ekki hugmyndafræði Vinstri grænna varð til þess að flokkurinn sendi frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að flokkurinn legðist ekki gegn olíuleit þar. Væntanlegri úthlutun rannsóknarleyfa í haust mun hins vegar einnig fylgja fyrirheit um olíuvinnslu og því lagði fréttamaður áherslu á það í viðtali við formann flokksins í dag að fá því svarað hvort flokkurinn styddi olíuvinnslu á svæðinu. Þegar hér er komið sögu er Kristján Már Unnarsson fréttamaður búinn að ítreka fjórum sinnum spurningu um afstöðu til olíuvinnslu án þess að skýrt svar hafi fengist frá Steingrími.

"Ég tel að það sé í ágætu samræmi við okkar afstöðu til umhverfismála að þessar rannsóknir fari af stað."

-En olíuvinnsla?

"Við munum síðan gæta vel umhverfissjónarmiðanna varðandi til dæmis að það sé ekki tekin mengunaráhætta. Og síðan verður þetta auðvitað skoðað, þegar eða ef þar að kemur, í hvaða samhengi verður það við loftlagsmálin, losunarmálin og aðra slíka þætti. Þannig að afstaða okkar liggur fyrir og hún er skýr: Við erum hlynnt því að þessar rannsóknir fari af stað."

-En þú svarar því ekki hvort olíuvinnsla eigi að fara af stað?

"Ef hún reynist þarna raunhæf, þá svara menn því þegar þar að kemur í hvaða samhengi hún verður og í hvaða umgjörð hún verður. Á ég að reyna að svara þessu fyrir þig í fimmta sinn eða..?

-Þið eruð að úthluta olíuvinnsluleyfum í haust. Þið hljótið að geta svarað því hvort þið séuð hlynnt olíuvinnslu sem slíkri og hvort olíuvinnsla á Drekasvæðinu samrýmist stefnu Vinstri grænna um sjálfbæra nýtingu orkulinda?

"Þetta fer af stað. Rannsóknirnar fara af stað á grundvelli þessara leyfa með möguleika um að færa það yfir í vinnslu ef vinnsla finnst.." "..Ég tel að það sé í góðu samræmi við okkar umhverfisstefnu að þessar rannóknir fara af stað."

-Þú svarar um rannsóknir. En ég spyr um olíuvinnslu sem slíka. Telur þú sem formaður Vinstri grænna að olíuvinnsla samrýmist stefnu Vinstri grænna um sjálfbæra þróun og sjálfbæra nýtingu orkulinda?

"Ég tel að sjálfsögðu, eftir því sem verður unnin olía í heiminum, eftir 15-25 ár, þegar mögulega á þetta reynir á Drekasvæðinu, þá útiloki okkar umhverfisstefna ekki það að Ísland verði aðili að olíuvinnslu, frekar en önnur lönd."

-Hefur Kolbrún Halldórsdóttir rangt fyrir sér þegar hún segir að olíuvinnsla sé ekki í samræmi við umhverfisstefnu Vinstri grænna?

"Ég tel að það sé ekki nákvæm túlkun. Ég tel að það sé ekki hið rétta orðalag. En það kunna vel að vera hennar persónulegu sjónarmið og hún hefur fullan rétt til að tala fyrir þeim."

-Flokkurinn er klofinn í þessu máli?

"Nei. Ég tel að hann sé ekki klofinn í þessu máli. Kolbrún Halldórsdóttir viðrar sín sjónarmið og velur hvernig hún orðar það. En stefna flokksins liggur skýrt fyrir og ég hef heyrt ekki neina minnstu óánægju með hana."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband