Miðvikudagur, 19. nóvember 2008
Mér finnst einhvern vegin að Ríkisstjórnin sé sprunginn.
Þeir tala í kross formenn stjórnarflokkanna. Er ekki bara spurning kl hvað tilkynning kemur um að stjórnin sé farin frá völdum. Allavega eru þeir ekki í takt, og margir af þingmönnum stjórnarflokkanna sem eru ekki að styðja stjórnina.
Davíð var með hvítþvott í gær og menn þora ekki að hrófla við honum innan Sjálfstæðisflokksins.
Nauðsynlegt að vera samstiga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 19. nóvember 2008
Atvinnuleysi eða hvað????
Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum. Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.
Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.
Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.
Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.
Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. "Ég var einu sinni staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 18. nóvember 2008
Mig langar að vita fyrir hvern er ASI að vinna??
Líflegur ASÍ-fundur í kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 18. nóvember 2008
Það er fengur fyrir Grundafjarðarbæ að hafa....
Í nógu að snúast í Grundarfjarðarhöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 15. nóvember 2008
Ekki eru allir sem eru með ofbeldi
Friður og blóm á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 15. nóvember 2008
Til hamingju Orkuveita Rykjavíkur..
Þriðji áfangi Hellisheiðarvirkjunar tekinn í notkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 15. nóvember 2008
Fábært framtak hjá Bubba.
Samstöðutónleikar Bubba í kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 12. nóvember 2008
Jæja þá er komið að herlegheytunum.
Forsetinn gagnrýndi nágrannaríki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 12. nóvember 2008
Hér er engin SPILLING....................
Hér er engin spilling!
Sænsk ráðfrú keypti bleiur á kreditkort sem var í eigu ríkisins. Forsætisráðherra vissi meira en hann gaf uppi í Tamílamálinu. Oddviti stjórnarandstöðunnar keyrði fullur á steypuklump um hánótt og hringdi sjálfur í lögregluna og beið örlaga sinna. Önnur sænsk ráðfrú í stjórn Reinfelds borgaði ekki afnotagjöldin hjá SVT. Hlutabréfaeign eiginmanns ráðfrúar komst í hámæli. Ráðfrúin reyndi að tala þetta niður í fjölmiðlum. Norskur ráðherra lét ríkið borga leigubílanótu sem tengdist einkaerindum. Utanríkisráðherra Finnlands sendi SMS til strípidrottningar. Norskur þingmaður hringdi án afláts í spákonu og notaði til þess síma þingsins.
Hér er listi yfir fólk sem var við völd á Norðurlöndunum en gerðu mistök í starfi eða sýndu dómgreindarbrest . Umdeilanlegt er hversu alvarleg þessi afglöp eru en allir þeir sem hér eru nefndir sögðu af sér í kjölfarið. Þetta eru aðeins þeir aðilar sem komu upp í hugann á 5 mínútna hugarflugi. Það er fjöldi annarra sem hægt væri að nefna og ef haldið er lengra austur og suður verður listinn ansi langur.
Á Íslandi er þessu öðruvísi farið. Einum ráðherra hefur verið vikið frá störfum fyrir afar óheppileg tengsl við gjaldþrota fyrirtæki og stjórnarsetu í banka. Hann brást við með því að bjóða sig fram í öðrum flokki skömmu síðar og komast þannig á þing. Endaði ferilinn sem sendiherra. Annar ráðherra sagði af sér vegna þess að hann réði fólk í vinnu sem var tengt honum fjölskylduböndum. Hann gerðist sendiherra í kjölfarið. Þingmaður stal stórum upphæðum úr kassa ríkisins, laug að fjölmiðlum hann var dæmdur í fangelsi í kjölfarið. Æran var uppreist og hann er aftur kominn á þing. Mætti auðvitað nefna hæstarréttardómarann sem safnaði brennivíni á kostnað ríkisins og þurfti að dæma frá embætti.
Ráðfrú byggir sér gullklósett og maki hennar er þátttakandi í olíusamráðinu.
Fjármálaráðherra fær greiddan arð af hlutabréfum í banka í ágúst 2008 allt árið hefur hann búið yfir vitneskju um afar slæma stöðu íslensk bankakerfis. Eignarhlutur hans er ekki gefinn upp en heildararðurinn sem hluthafarnir tóku sér var 13,5 milljarðar.
Ráðherra kaupir brennivín á ríkiskjörum og veitir gestum í fertugsafmæli vinar síns.
Þingmaður er stjórnarformaður og eigandi hlutar í olíufyrirtæki auk fjölmargra annarra fyrirtækja eign hans er óræð.
Þingmaður, sem var aðstoðarmaður forsætisráðherra, sat í stjórn sjóða í gjaldþrota banka og þáði hundruð þúsund á mánuði í viðbót við þingfararkaupið.
Forsætisráðherra er tengdur blóðböndum og vináttu við helstu leikmenn bankakerfisins sem var. Hann faðmaði opinberlega varaformann bankans sem gaf okkur IceSave reikningana eftir að það hneyksli komst í hámæli.
Seðlabankastjóri vaknar við símtal frá sendiherra Rússlands. Skömmu síðar er hann kominn í fjölmiðla að segja frá lánaloforði sem síðar kemur í ljós að var hreint ekkert á hreinu. Um kvöldið gefur hann út yfirlýsingar sem má færa rök fyrir að hafi valdið ómældum skaða fyrir þjóðina.
Ráðfrú var með allan sinn sparnað, sem að mestu samanstóð af bankabréfum í einkahlutafélagi. Eiginmaður hennar ráðlagði viðskiptavinum bankans að halda í bréf sín í bankanum fram á síðasta dag. Sjálfur færði hann allt í einkahlutafélag auk þess sem persónulegar ábyrgðir toppanna í bankanum vegna lána voru felldar niður. Ráðfrúin eiginkona hans sat á sama tíma á ríkisstjórn þar sem m.a. var ákveðið að bjarga þessum banka frekar en öðrum.
Sveitarstjórnarmaður keyrir fullur. Hann er í framhaldinu gerður að aðstoðarmanni ráðherra.
Þingmaður keyrir fullur.
Tilvonandi bæjarstjóri keyrir fullur og flýr af vettvangi.
Hér er ekki minnst á forstjóra, framkvæmdarstjóra og eða stjórnarformenn ríkisfyrirtækja og stofnana eða lífeyrissjóða.
Allt þetta fólk er enn við störf. Það er engin að segja að dæma eigi þetta ágæta fólk eitthvað harðar en aðra. Vafinn er hins vegar alltaf þeirra. Hann er aldrei þeirra sem unnið er fyrir. Spurningin er hvort ekki sé kominn tími á tvær mínútur eins og í handboltanum. Menn átti sig á vitjunartíma sínum, hæfi eða vanhæfi. Fari útaf og láta síðan málið í dóm kjósenda ef þeir vilja aftur inná.
Ísland er stundum sagt minnst spillta land heimsins. Þetta er íslenska leiðin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008
Það eru ekki margir sem myndu bregðast svona við.................
Ég er ánægður að Bjarni skyldi bregðast svona við mistökum sínum. Það eru margir sem mættu taka hann til fyrirmyndar og segja af sér þingmennsku. En hitt er annað mál þá er svakalegt af Bjarna að ætla sér að vinna svona og er alveg með ólíkindum að menn vinni svona, að ætla sér að láta einhvern lepp sverta mannorð annarar manneskju á þennan hátt. Er það virkilega raunin að svona vinni þingmenn landsins okkar?? Ég veit að Bjarna gekk það til að styrkja formann flokksins en nú snérist það í hönum hans og virkar neikvætt á stöðu formannsins í komandi kjöri. En ég vona samt að Valgerður fari ekki fram hennar tími er liðin ég er sammála Bjarna þar. Í mínum huga eru einungis 2. manneskjur sem eiga að taka við formennsku í Framsóknarflokknum. Það er Björn Ingi Hrafnsson annarsvegar og svo hinsvegar Sæunn Stefánsdóttir. Þau tvö eru hæfustu innan Framsóknarflokksins að mínu mati. Ef flokkurinn ætlar sér eitthvað í næstu kosningum verður hann að skipta út þessum þingmönnum sem ekkert hefur heyrst í út af þessu ástandi sem er í þjóðarbúskapnum í dag maður er með það á tilfinningunni að Guðni sé einn í flokknum.
Góðir Framsóknarmenn brettum upp ermarnar og fáum okkur nýtt fólk til forustu og á lista okkar.
Fékk aðeins í magann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)